vetur – píningur كلمات اغاني
éljúðnir opnaðist upp á gátt í norðri
heljarfrost yfirtók allt landið
stigveldi hörku frá haustmánuðum
til enda góu er hafið fraus við frón
sólsett í upphaf þorra
tók með sér allan yl
sultur á borðum í hverjum bæ
sviðin bein í öllum h_rnum nöguð í gegn
út í hríðina förinni var heitið
hungrið ýtti öllum áfram
botnfrosinn fjörður
bátar í heljargreipum
fæðan undir mörgum föðmum af ís
frosin tár særa kinn
fjöllin hverfa í fönn
hvítblinda tefur för
vonleysi stöðvar för
út fyrir fjörð, von um æti
minnkar með hverju skrefi
fingur og tær blásvartar
brátt dvína allir kraftar
við minni fjarðar standa
með brostin hjörtu
ís eins langt og augað eygir
köld eyðimörk í allar áttir
hungurverkir og þróttleysi
tíminn rennur út
för til baka með hendur tómar
einn af öðrum falla úr hor og vosbúð
frostið nístir inn að beini
hrímaugu stara upp í himin
og hverfa senn í fönn
كلمات أغنية عشوائية
- dtrey › dtrey – stark mountain كلمات اغاني
- jaybzy › jaybzy! – stop dat bih كلمات اغاني
- pile of love › pile of love – over & out كلمات اغاني
- jeanette › jeanette – no me fío más كلمات اغاني
- blanket boys › blanket boys – hard to love كلمات اغاني
- immy odon › immy odon – let me go كلمات اغاني
- spiral drive › spiral drive – wherever i may roam كلمات اغاني
- yung fuego › yung fuego – outside! كلمات اغاني
- oble reed › oblé reed – blackkids. كلمات اغاني
- fabian wegerer › fabian wegerer – dächer aus papier كلمات اغاني