kalimah.top
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

skálmöld – valhöll كلمات اغاني

Loading...

hetja er fallin, höndin sár
höfuðið klofið að strjúpa
gróa þar síðan baldursbrár
berjalyng kroppar rjúpa

valkyrjur sækja vígamenn
völlurinn ataður blóði
einherja mun þig óðinn senn
útnefna, vinurinn góði

hafinn á loft og traust er tak
tekinn án nokkurra refja
bergmálar víða vopnaskak
við megum alls ekki tefja

sannað sig núna hefur hann
hetja og örlagavaldur
kveðjum við þennan mæta mann
maðurinn sá heitir baldur

valkyrjur nú valinn kanna
velja menn til stórræðanna
okkar þannig bifröst bíður
baldur hafri þórs upp ríður

yfir sjáum heiðna hrafna
huginn, muninn visku safna

heimdallur mun hliðin opna
höldum inn og beint til vopna
einherjar um völlinn vaða
valhöll, staður allra staða

miðgarður kveður, magnlaus þá
mókaður um ég svamla
núna ég horfi niður á
nautin við bæinn minn gamla

bærist þar líf við bæjartjörn
balinn er umvafinn lyngi
leika sér þarna lítil börn
lífið það gengur í hringi

að okkur nú goðin gæta
glaðir skulum kverkar væta

mært hvern annan mætir getum
mjöðinn drekk-m, kjötið etum

báðir tveir, jarl gunnar, grímur
glösin tæma, kveða rímur

heimdallur mun hliðin opna
höldum inn og beint til vopna
einherjar um völlinn vaða
valhöll, staður allra staða

búnir undir ragnarökin
rek-m sverðin út um bökin
sárin gróa, sorgir bakka
sálin heil, ég óðni þakka

كلمات أغنية عشوائية

اهم الاغاني لهذا الاسبوع

Loading...