kalimah.top
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

sigmundur davíð gunnlaugsson – niðurstaðan كلمات اغاني

Loading...

nú finn ég mig hér sitjandi
um liðna daga hugsandi
blað á borðið setjandi
og penna úr vasa dragandi

þankana svo skrifandi
í konna gísla vísandi
um fólk í stóla haldandi
og svörtum bílum akandi

völdum sínum beitandi
en kerfisræði fylgjandi
flokksfélaga ráðandi
en á öðrum brjótandi

gjöld og skatta hækkandi
reglur allar flækjandi
báknið sífellt stækkandi
á skriffinnskuna bætandi
og lýðræði burt gefandi

sjúklinga út sendandi
hjúkrunarheimili sveltandi
skimununum klúðrandi
samtök_m út hýsandi
lækningum barna hamlandi
en eldra fólkið skerðandi
eiturlyfin leyfandi
en plastpokana bannandi
hálendinu lokandi
fullveldi frá sér látandi

orku landsins fórnandi
framleiðsluna heftandi
í vitleysuna eyðandi
ofan í skurði mokandi
og losun kína aukandi

flugvöll í hraun færandi
en aðra samt vanrækjandi
borgarlínu leggjandi
veggjöld fyrir takandi
og umferðina stöðvandi
bíleigendum refsandi

byggðamálum gleymandi
landbúnaðinn kæfandi
gerlamat inn flytjandi
iðnaðinn forsmáandi

hælisleitendum fjölgandi
gegn skynseminni farandi
og glæpahópum hjálpandi
en nauðstöddum ei sinnandi
ritskoðun á komandi
miðla ríkisvæðandi
á písakönnun fallandi
og iðnnemunum hafnandi

í stórum málum sofandi
en í rétttrúnaði vakandi
og dellu alla eltandi

sjálfum sér þó hrósandi
á bak við veiru skýlandi
í faraldri sig felandi
þannig var hún starfandi
ríkisstjórn íslands verandi

كلمات أغنية عشوائية

اهم الاغاني لهذا الاسبوع

Loading...