kalimah.top
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

pascal pinon – sandur كلمات اغاني

Loading...

að vera einn út á engi
með einum manni og einni kind
að finna þyt í laufum
að finna ferskan vind
ég er hér en þú ert þar
og samtök væru synd
ó viltu hætta að níðast á mér
með þinni orkulind

stundum er ég einmana
og vil þá fara heim
á stjörnubjartri nóttu
ég horfi út í geim
vorið er og vorið var
alltaf á leiðinni
ó viltu hætta að segja mér
frá fortíðinni

að lifa á þessu landi
það eru fríðindi
hvers má maður gjalda
fyrir þau hlunnindi?
frumvarpið og andvarpið
með öll sín blíðindi
ó viltu ekki hafa af mér
öll mín réttindi

hvar er heitt og hvar er kalt
en hvar er hvorki né?
ég skrifaði á hend mína
nú húðlit hvergi sé
ég hef unnið ég hef unnið
hvenær fæ ég hlé?
ó viltu ekki drepa hann
drepa hann e.t

كلمات أغنية عشوائية

اهم الاغاني لهذا الاسبوع

Loading...