kalimah.top
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

meissdarri – perlur كلمات اغاني

Loading...

[vers 1]
í gærnótt kom mér vart dúr á auga
ég vaknaði lurk-m laminn, með undursamlega klúra drauma
því þegar setið er að sumbli, þá hitna kolin
og girndin sem liggur inn í kviðarholi
hún brýst úr svo ríkuleg, ítrekar að þrýsta sér
upp að næsta líkama sem lætur manni líða vel
í þau andartök er létt að vera til
vellíðunarlögmálið, það eltast allir við
.. en mér bregður hvergi við
að sjá kollega mína skarta sínum svefnherbergissvip
… ég sé þá ráfa milli tilboða
ákveðnar hnátur skilja þá ávallt eftir vitstola
þær hljóta að þrífast á ráðþrota piltum
sem eru ó svo blindir á hvað þeir áorka litlu
þeir súpa jú og snúast í eina súpu af hvötum
og í versta falli kúra þeir í sjúkrabörum
þeir fussa við… því að beygja eða bugta sig
… láta frekar fleygja sér í tugthúsið
ég er einn af þeim, fruss í hafið
hvorki munn við munn né hjartahnoð reynist upplífgandi
meðaljón og hef að bjóða lítið meira en aðrir
sem drekka bjór en verja þó lífi sínu í dansi
fótatak þitt hrókeraði blóðflæði mitt
en samlagað það hljómar eins og hljóðfæraspil
f-gurt, en síðast þegar ég sameinaði krafta
voru bara skuggar skildir eftir og ég varðveitti þá alla
fastur í fjötrum tilfinninga, frelsið leikur úti við
svo taktu hönd mína og leiddu mig út í tunglskinið

[chorus]
kaldur vökvi sem þú lætur í þig
og ég finn þegar fljótið rennur
þegar kafað er á hyldýpi næturlífsins
má finna meira grjót en perlur

كلمات أغنية عشوائية

اهم الاغاني لهذا الاسبوع

Loading...