maus – poppaldin كلمات اغاني
þú býrð í gluggunum á móti
í húsi sem er úr grjóti
en svo vel innréttað að þar skín allt úr gulli
og þú þykir köld sem veggirnir
en ég veit að þú ert eins og húsið
gimsteinn undir krákasvörtum kolli
og augun þau varpa neongylltu ljósi
sem lýsir þó aldrei upp andlitið
og á næturna mig dreymir
að þú hvíslir til mín
að þér hafið verið rænt af manni
sem girndist augu þín
og á næturna mig dreymir
að hann rækti aldintré
og þyki þú góður áburður
og nú grafinn djúpt, djúpt ofan í garði
undir aldintré með vondu bragði
og þó þú hvílir við þess rætur
ber það engan ávöxt
því einmana stúlkur eru aum næring fyrir aldintré
og ég veit að þú ert eins og aldintréð
visnuð eftir ævilanga vanrækslu
plantað niður á sama staðnum endalaust
og bíður þess að springa út
og á næturna mig dreymir
að þú hvíslir til mín
að þér hafið verið rænt af manni
sem girndist vöxt þinn
og á næturna mig dreymir
að hann vanræki aldintré
og þyki þú góður áburður
ég hef aldrei yrt á þig
og aldrei tekið bita af þér
en af hverju stend ég þá hér með skóflu í hönd
í opinni gröf og leggst niður við hliðina á þér
og breiði yfir okkur
og þó ég andi aldrei aftur
þá verð ég öruggur hér
og þó ég hugsi aldrei aftur
þá verð ég öruggur hér
og þó ég kafni í ófrjórri mold
þá verð ég öruggur hér í örmunum á þér
كلمات أغنية عشوائية
- muhandas › muhandas – ذاكرة مواطن – الجزء الثاني كلمات اغاني
- confliction › confliction – crippled كلمات اغاني
- traudes › traudes – back down كلمات اغاني
- andy steel › andy steel – the old soul كلمات اغاني
- 2pac › 2pac – dear mama (baby mama mix) كلمات اغاني
- moe chipps billionz feat az › moe chipps & billionz feat. az – hold up كلمات اغاني
- five for fighting › five for fighting – song for the innocents كلمات اغاني
- cold cold hearts › cold cold hearts – maybe scabies كلمات اغاني
- matt wertz › matt wertz – voices كلمات اغاني
- lina › lina – limit كلمات اغاني