kalimah.top
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

ljótu hálfvitarnir – ábóta vant كلمات اغاني

Loading...

ég var eins og aflóga klaustur sem var ábótavant
og allir munkarnir stjórnlausir
sem illa lögð drusla á gangstétt, æ uppá kant
við alla og allt bæði síðar og fyrr

líf þitt var innantóm ömurð og allsendis laust
við allt sem helst gæti kallast gott
í sálarkytrunni ótíð og endalaust haust
á almættinu var skítaglott

samt get ég ekki lengir mér tamið tuð
því tilfellið er;
èg hætti við að baktala og berja guð
er birtist þú mér
svo nú hefur klaustrið sem áður var ábótavant
með abnadísinni braggast vel
druslun í stæði við stöðumæla, ef grannt
er skoðað, stillt og með nýja vél

líf mitt er endalaus tilbeiðsla tvímælalaust
og tóbak fer ekki í efri vör
já, sálarhræið sem grafið fyrr var í fönn
reis furðu sprækt upp úr sinni kör

nú get ég ekki lengur mér tamið tuð
því tilfellið er
að eymdin hefur snúist í stanslaust stuð
sem stigmagnast fer

því núna ég sé hvorki sól eða tungi fyrir þér
og svolítið fleira af plánetum horfið ér mér

كلمات أغنية عشوائية

اهم الاغاني لهذا الاسبوع

Loading...