kalimah.top
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

hatari – x كلمات اغاني

Loading...

x! ljóðið er dautt listform og vitið uppurið
orðið er jarðsungið við stynjan hórkarla, mógúla og svikahrappa
það kostar milljarð að fá krabbamein og líftóruna að losna við það

– þú horfðir á mig deyja

þornaðir ávextir glataðra væntinga halda skrílnum í algleymingi
gjaldþrot hins andlega mergsýgur framtakið og kæfir það í biturleika
saltinu úr grautnum er stráð í sárið og ég veslast upp og skrælna

– þú horfðir á mig deyja

óþrjótandi gengisfallið ámáttkast í óbilandi meðalmennsku meðalmannapans
lygarnar eru sem hnífur í blæðandi síðu aumingjans
hann krýpur á hnjánum. holskeflan er gröf
saltinu úr grautnum er stráð í sárið og ég veslast upp og skrælna
dreyri vellur – hann fellur í valinn

– þú horfðir á mig deyja

كلمات أغنية عشوائية

اهم الاغاني لهذا الاسبوع

Loading...