kalimah.top
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

fortid – heltekinn كلمات اغاني

Loading...

vindarnir syngja sinn svartasta söng
leyfa mér ekki að dreyma
nóttin, hún virðist svo endalaust löng
andar í kring um mig sveima

drekka nú með mér guðaveigar
draugar heljar og dæmdir menn
syngur með vindunum, mjöðinn teigar
ískaldur fjandinn mig finna mun senn

prestarnir kalla “við fyrir þér biðjum!”
en sjálfið er löngu laust úr þeim viðjum
undir tungli, um myrka dali
tignar strendur og fjallasali
það ferðast í rökkri, fyrir trú þeirra falið
þótt eftir standi holdið kalið

fáu er svarað þótt mikið sé spurt
og þræðir lífsins hratt upp rakna
að lok_m mun dauðinn mig leiða í burt
og mun ég þá annað hvort sofna eða vakna

كلمات أغنية عشوائية

اهم الاغاني لهذا الاسبوع

Loading...