kalimah.top
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

bubbi morthens – syndir feðranna كلمات اغاني

Loading...

[verse 1]
er síminn hringdi þá svaf borgin
ég sat sem lamaður við þá frétt
ég fylltist reiði _ síðan kom sorgin
sumar fréttir hljóma aldrei rétt

ég var orðin edrú þegar hann fæddist
aldrei gleymi ég þeirri stund
sú tíð var liðin er ég drukkinn læddist
um húsið heima með svarta lund

[chorus]
og nú sit ég hér á að svara þér
sit við þetta borð
og þú segir mér að sonur minn
sé ákærður fyrir morð

[verse 2]
faðir minn heitinn var harður maður
með hjartað vel falið og ráma rödd
okkar heimili var hans drykkju staður
við forðuðumst að verða á vegi hans stödd

þannig liðu árin uns ég fór að heiman
úti var veröldin svo risastór
en ættardrauginn ég dæmdist að teyma hann
drykkjan fylgdi mér hvert sem ég fór
[chorus]
og nú sit ég hér á að svara þér
sit við þetta borð
og þú segir mér að sonur minn
sé ákærður fyrir morð

[verse 3]
ég og mín kona ólum upp þrjú börnin
eftir bestu getu og tíminn leið
stundum var vöndurinn eina vörnin
ef villtust börnin af réttri leið

hann hef ég elskað frá fyrstu stundu
frá fyrstu mínútu í lífi hans
en syndir feðranna drenginn minn fundu
og færðu honum að gjöf ólukkukrans

[chorus]
og nú sit ég hér á að svara þér
sit við þetta borð
og þú segir mér að sonur minn
sé ákærður fyrir morð

[verse 4]
sonur minn er ekki illur maður
engin sál veit sinn lífsins veg
sem lítill drеngur var hann góður _ glaður
nú græt ég hans örlög hryggileg
[chorus]
og nú sit ég hér á að svara þér
sit við þetta borð
og þú segir mér að sonur minn
sé ákærður fyrir morð

og nú sit ég hér á að svara þér
sit við þеtta borð
og þú segir mér að sonur minn
sé ákærður fyrir morð

og þú segir mér að sonur minn
sé ákærður fyrir morð

كلمات أغنية عشوائية

اهم الاغاني لهذا الاسبوع

Loading...