kalimah.top
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

bubbi morthens – stúlkan sem starir hafið كلمات اغاني

Loading...

ég kom í þorpið kvöld eitt um sumar
klukkan tólf í miðnætursól
ég fékk herbergi upp á verbúð, það virtist í lagi
með vask, borði og stól

um morguninn gekk ég út á götuna að skoða
sá gömul vélhræ liggja út á lóð
ég sá hús sem áttu sögu og sum voru að deyja
það seytlaði úr gluggunum blóð

það er stelpa sem starir á hafið
stjörf með augun mött
hún stendur öll kvöld og starir á hafið
stóreyg, dálítið fött

ég sá hana dansa með döpur græn augu
dansa líkt og hún væri ekki hér
hún virtist líða um í sínum lokaða heimi
læstum fyrir mér og þér

hver hún var vissi ég ekki en alla ég spurði
sem áttu leið þar hjá
þar til mér var sagt að einn svartan vetur
hefði sjórinn tekið manninn henni frá

þetta er stelpan sem starir á hafið
stjörf með augun mött
hún stendur öll kvöld og starir á hafið
stóreyg, dálítið fött

þessi starandi augu, haustgræn sem hafið
ég horfði ofan í djúpið eitt kvöld
þau spegluðu eitthvað sem aðeins hafið skildi
angurvært, tælandi og köld

uppi á hamrinum stóð hún og starði yfir fjörðinn
stundum kraup hún hvönninni í
þar teygaði hún vindinn og villt augun grétu
meðan vonin hvarf henni á ný

þetta sumar var fallegt, ég fékk nóg að vinna
það fiskaðist og tíðin var góð
en ég stóð og hugsaði og starði út um glugga
um stelpuna sem var talin óð

eina nótt hrökk ég upp í skelfingu og skildi
hvað skreið um í hjarta mér
það sem virtist í fyrstu bara forvitni hjartans
hafði fundið ástina hér

í stelpu sem starir á hafið
stjörf með augun mött
hún stendur öll kvöld og starir á hafið
stóreyg, dáldið fött

daginn eftir fór ég með fyrsta bílnum
sem flutti mig suður á leið
ég leit aldrei til baka, ég bölvaði í hljóði
og í brjóstinu var eitthvað sem sveið

er ég les það í blaði að bátur hafi farist
þá birtist mynd í huga mér
þar sem hún stendur og starir á hafið
starir þar til birtu þver

@valeriaingridy

كلمات أغنية عشوائية

اهم الاغاني لهذا الاسبوع

Loading...