kalimah.top
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

bróðir svartúlfs – alinn upp af úlfum كلمات اغاني

Loading...

ég laga bindið og virði eigin spegilmynd fyrir mér, raka af mér mjólkurskegg
líst ykkur á? líst ykkur á? líst ykkur misindismönnum á?
faðir kenndi mér að handleika byssur en morðhuginn fékk ég í móðurlegg
líst ykkur á? líst ykkur á? líst ykkur misindimönnum á?
viljið þið vera svo væn að veita mér inngöngu inn í augun á ykkur hið snarasta…
sýnið mér ást, sýnið mér hlýju , sýnið mér faðmana
fælið þið beinagrindur úr skápnum svo ég verði ey andvaka
og sýnið mér ást og sýnið mér hlýju, kyssið mig góða nótt

ég var alinn upp af úlfum og fólkið var visst um að ég væri vangefið flón
líst ykkur á? líst ykkur á? líst ykkur misindismönnum á?
dagar og nætur fara einungis í setja saman lygar og hræðileg ljóð
líst ykkur á? líst ykkur á? líst ykkur misindimönnum á?
viljið þið vera svo væn að veita mér inngöngu inn í augun á ykkur hið snarasta…
sýnið mér ást, sýnið mér hlýju, sýnið mér faðmana
fælið þið beinagrindurnar úr skápnum svo ég verði ey andvaka
og sýnið mér ást og sýnið mér hlýju, kyssið mig góða nótt

tíminn er eins og vatnið sagði steinn… ég er að drukkna
frá fyrsta degi horft á heiminn í gegnum brotinn glugga
á tíunda afmælisdaginn lét ég fræ falla til jarðar
þann tuttugasta var risið tré, af einni grein hékk snara
röddin í mér er ekki hærri en í manninum mér við hlið
sögurnar mínar eru ekki betri. hrafnarsparkið sem að ég rita
munurinn felst í því að veröldin veitir honum yl
á meðan að ég get bara öskrað mér til hita

ég get ekki lifað á ystu nöf, leigan þar er alltof dýr fyrir mann einsog mig
líst ykkur á? líst ykkur á? líst ykkur misindismönnum á?
heimili mitt er við barinn og vinirnir mínir verðir sem kasta mér á dyr
líst ykkur á? líst ykkur á? líst ykkur misindimönnum á?
viljið þið vera svo væn að veita mér inngöngu inn í augun á ykkur hið snarasta…
sýnið mér ást, sýnið mér hlýju, sýnið mér faðmana
fælið þið beinagrindurnar úr skápnum svo ég verði ey andvaka
og sýnið mér ást og sýnið mér hlýju, kyssið mig góða nótt

draumurinn er að verða svo frægur að fólk sem að ég þekki ekki, baknagi mig
líst ykkur á? líst ykkur á? líst ykkur misindismönnum á?
raunin er sú að sannleikurinn hljómar í flestum tilvik-m ósannfærandi
líst ykkur á? líst ykkur á? líst ykkur misindismönnum á?
viljið þið vera svo væn að veita mér inngöngu inn í augun á ykkur hið snarasta…
sýnið mér ást, sýnið mér hlýju, sýnið mér faðmana
fælið þið beinagrindurnar úr skápnum svo ég verði ey andvaka
og sýnið mér ást og sýnið mér hlýju, kyssið mig góða nótt

við erum ljót en við höfum tónlist sagði cohen og ég sagði satt
ég er fílamaðurinn syngjandi, lánið mér fyrir mat
með raddböndum festi ég landfestar, reisi mitt höfuð upp
bleiti varirnar og ræski mig, segi ykkur sögur um
lífið og dauðann og og himinn og hel og áfengið og píkur og tippið og ástina
og hatur og dísina mína og minningar, heimilið, bæinn og móður og föður og það sem að var
og það sem að er, það sem að kemur og væntingar mínar til þess
þið verðið að vera svo væn að veita mér inngöngu ég er ekki eins og þið flest

كلمات أغنية عشوائية

اهم الاغاني لهذا الاسبوع

Loading...