
una torfa - um mig og þig كلمات أغنية
[verse 1]
ég spurði hvort
við gætum lifað af
í kúlu þar sem ljós kemst inn
og ekkert út
hvort við gætum
skapað okkur heim
sem væri okkur nóg
og skrúfað fyrir stút
[chorus]
ég er ljóðskáld
þú ert líffræðingur
sköpum þrúgusykur
ljóstillífum
með ljósi, vatni og orðum
þarf nokkuð meira til
en ást og yl?
[verse 2]
við prófuðum
að skrúfa aðeins fastar
faðmast aðeins lengur
og verða aftur hlýtt
en svo vaknar
spurning um hvað sé fyrir utan
hvort að það sé nóg
að þekkja þetta eitt
[chorus]
ég er týnd sál
hélt ég gæti fundist
ef ég bara stæði kyrr
á vísum stað
með ljósi vatni og orðum
þyrfti ekkert meira til
en mig og þig
[verse 3]
ég spurði hvort
ég mætti skrúfa frá
kíkja síðan út
koma aldrei aftur inn
ég spurði hvort
þér yrði nokkuð kalt
hvort það væri í lagi
að þú yrðir ein
[chorus]
ég þarf að leita
þetta er ekki heima
þú átt betra skilið
en týndu litlu mig
en þú mátt eiga ljósið
vatn og orðin mín
ef ég fæ þín
ef ég fæ þín
كلمات أغنية عشوائية
- audio artwork - manifest كلمات أغنية
- doug e. fresh & the get fresh crew - ev'ry body loves a star كلمات أغنية
- saintdomgvng - ali di ferro كلمات أغنية
- ricky gestein - baby mamas كلمات أغنية
- jonathan richman - monologue about bermuda كلمات أغنية
- the reytons - slice of lime كلمات أغنية
- siberia - tramonto per sempre كلمات أغنية
- na yoon kwon - 우주안에서 (in the cosmos) كلمات أغنية
- morgan - crash (storia di un inventore) كلمات أغنية
- malachi (rap) - not sorry كلمات أغنية