una torfa - ekkert að كلمات الأغنية
[verse 1]
ég er með holur í hausnum
munn sem segir þér frá
ég er með augu sem leka
tár sem full eru af þrá
og þú heldur í hendur
segir margt en samt fátt:
„þú ert stórkostleg stelpa
en við snúum í sitthvora átt“
[chorus]
það er ekkert að
segir mér að það sé ekkert að
gætirðu ekki reynt að elska það
sem þú segir að sé ekkert að?
[verse 2]
þú heilsar mér aldrei
og þú segir alltaf bless fyrst
og ég hef aldrei kysst þig
það er alltaf ég sem er kysst
og þú getur farið
og komið þegar þú vilt
en ég á að bíða
nema ég geti þér fylgt
[chorus]
það er ekkert að
segir mér að það sé ekkert að
gætirðu ekki reynt að elska það
sem þú segir að sé ekkert að?
[verse 3]
ég veit það er erfitt
að tala um allt eins og það er
og þú skuldar mér ekkert
nema að ljúga ekki að mér
[chorus]
það er eitthvað að
sem að kemur í veg fyrir það
að þú getir elskað stelpuna
sem þú segir að sé ekkert að
كلمات أغنية عشوائية
- farruko - voy a 100 كلمات الأغنية
- king chip - deion sanders كلمات الأغنية
- daddy yankee - igual que ayer كلمات الأغنية
- smile - island paradise كلمات الأغنية
- john coltrane - lover come back to me كلمات الأغنية
- lilygreen & maguire - falling out of love كلمات الأغنية
- chezidek - bun di ganja كلمات الأغنية
- oriente - se كلمات الأغنية
- sahtyre - bad habit كلمات الأغنية
- sleepshaker - north end blues كلمات الأغنية