kalimah.top
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

subminimal & samaris - stofnar falla (subminimal remix) كلمات أغنية

Loading...

stráin sölna. stofnar falla
stormur dauðans næðir alla
ljóselskandi, langanþrungið
lífið fyllir öll þau skörð
sækir fram í sigurvissu
svo er strítt um alla jörð

stríðsmenn falla. hetjur hníga
hjaðningum er stefnt til víga
aldrei verður sætzt á sakir
sækja og verjast herjum tveim
sólskinsbörn og synir skuggans
svo er strítt um allan heim

tefld er drápskák tveggja herja
tvíefld sókn og reynt að verja
öllu tjaldað: erfðaheimsku
afturhaldi, þræladyggð
móti þroskans sókn til sigurs
svo er strítt um alla byggð

fallinn er hann fjögramaki
fyrr sem lyfti grettistaki
þó að hetja hnigi í valinn
hefjum merkið, fram skal stefnt
syrgjum ei, en söfnum liði
svo skal góðra drengja hefnt

þó að hetja hnigi í valinn
hefjum merkið, fram skal stefnt
syrgjum ei, en söfnum liði
svo skal góðra drengja hefnt

كلمات أغنية عشوائية

كلمات الأغنية الشائعة حالياً

Loading...