
skauti - einmana كلمات أغنية
einmana en hvað um það
ég sveima á milli hugsana, fæ valkvíða
spenni svo upp bogann minn
reyni að hitta í skotmarkið blindandi
væri kannski betra ef við værum bara tvö
en nú stendur allt í stað
svíf upp þegar ég loka augunum í kvöld
við hittumst kannski þar
og við sjáum til með framhaldið
hún er stelpa sem að málar himininn
með litum sem ég hef aldrei séð áður fyrr
færumst aðeins nær
hugurinn reikar oft til klúrra hugsana
get ekki hætt að hugsa um þennan líkama
kossinn þinn svo kær
ég kyssi þig á bleiku skýi
ein við svífum gegnum loftin blá
svo lengi sem ég er á lífi
mun ég aldrei losna við þá þrá
og þó að æviárin hverfi
og við höfum jafnvel aldrei kynnst
þá máttu vita að þú ert velkomin
í hugarheiminn minn
hún lætur mig fá þær hugsanir
sem hafa aldrei ratað inn í kollinn minn
og fyrr en varir verð orðinn prinsinn þinn
handviss um að þú smellpassir í glerskóinn
þó ég viti að ég vakni án allra svara
þá er svolítið sem er að angra mig
því еinu skiptin sem við erum saman
er bara þegar að mig еr að dreyma um þig
كلمات أغنية عشوائية
- lauren harris - steal your fire كلمات أغنية
- minotauri - storms of the world كلمات أغنية
- late tuesday - crazy كلمات أغنية
- kristin banks - another woman's dream كلمات أغنية
- 8ball - this that كلمات أغنية
- mister metaphor - 90 words كلمات أغنية
- mustard plug - life is too short كلمات أغنية
- maria haukaas storeng - hold on be strong كلمات أغنية
- lackthereof - last november كلمات أغنية
- nawfel - i get lifted كلمات أغنية