
pascal pinon - en þú varst ævintýr lyrics
ég var hin þyrsta þyrnirós
en þú hið unga vín
ég var hinn blindi, er bað um ljós
þú blys, sem alltaf skín
ég var sú lind, sem leggur fljótt
þú léttur blær og hlýr
ég var hin þyrsta, þögla nótt
sem þráði ævintýr
á bak við fjöllin beið ég þín;
ég beið þín út við sund
ég las þér fyrstu ljóðin mín
á lífsins óskastund
með kross á brjósti, í hvítum hjúp
þú komst að hjarta mér;
á lífsins ey, á dauðans djúp
sló dýrð úr augum þér
ég var hin þyrsta þyrnirós
en þú hið unga vín
og nóttin kom með norðurljós
og nýjan söng til mín
við höfum töfratjöldin gist
og tíminn leið þar fljótt
en þar var bjart, og þú varst kysst
í þúsund og eina nótt
þó særðir fuglar syngi dátt
er söngur þeirra kvein
þeir finna til, sem flugu hátt
og féllu niður á stein
og yfir djúpi dimmir fljótt
er dagur burtu flýr
ég er hin þreytta, þögla nótt
en þú varst ævintýr
Random Lyrics
- 2 skinnee js - you're a champion lyrics
- 2 sweet love - all aboard this sinking ship lyrics
- 2 sweet love - all one hundred of us are enlightenment lyrics
- 2 sweet love - expatriates and survivors of love, this song is for you lyrics
- 2 sweet love - squid vs. whale lyrics
- 2 sweet love - the plan was to burn it down and walk away lyrics
- 2 sweet love - there's only one kind of rock n' roll lyrics
- 2 unlimited - back into the groove lyrics
- 2 unlimited - be free tonight lyrics
- 2 unlimited - break the chain lyrics