leikhópurinn kalli á þakinu - ó, að ég ætti hund lyrics
Loading...
ó, að ég ætti hund,
yndislegt væri það.
skemmtilegt seppaskinn,
ekkert skildi’ okkur að.
ógurlegt ættartré,
ekki er nauðsynlegt.
við félagar yrðum fljótt,
tveir í friði og spekt.
ágætis einkunnir,
ef ég nú myndi fá.
fengi ég kannski hvolp,
til að kúra mér hjá.
sá ætti sældarlíf,
saddur hann væri’ og hreinn.
hann fylgdi mér út og inn,
og ég ætti’ hann alveg einn.
litli ljúfurinn minn,
léki sér til og frá.
fólk myndi flykkjast að,
til að fá hann að sjá.
samstundis sæju menn,
að seppi hann væri minn.
með flauti hann fengi boð,
um að fylgja mér hlýðinn inn.
þó að hann væri víst,
til vandræða af og til.
hugsa samt myndi hann,
hérna búa ég vil.
ó að ég eignist hund,
eftir svo langa töf.
ekkert ég annað vil,
í afmælisgjöf.
كلمات أغنية عشوائية
- andrei - mr. miyagi lyrics
- badploy - не верю (i do not believe) lyrics
- jack the rapper - utopie lyrics
- crux - be merry, my friends! lyrics
- arshia (irn) - aarezeh lyrics
- lonesome wyatt and the holy spooks - hospital lyrics
- christian french - make or break up lyrics
- tt - fake bandz lyrics
- the paris sisters - help me lyrics
- crazy hate - vida loca lyrics