
kriki - ljós lyrics
Loading...
til var ljós sem logaði glatt
lýsti upp heiminn og fegraði allt
lækir og lindir, himinn og haf
lofuðu ljósið sem lit sinn þeim gaf
drengur einn frá fjarlægum stað
dreymdi ljósið og dáði það
ljósið nærðist, skein skærar en skært
skreytti lífið og varð honum kært
en drengurinn vandist birtunni fljótt
gleymdi að fyrir tíð ljóssins var nótt
ljósið sem kepptist við að gefa öllu glans
gat ei meir fangað athygli hans
geislar ljóssins þá tóku að dvína
það orkaði ekki lengur að skína
drengurinn draumlyndi sá ekkert greint
fyrr en eftir að það var orðið of seint
reikull hann ráfar í rökkrinu svarta
ráðvilltur saknar hann ljóssins bjarta
dapurt hjarta hann sér það
hann slökkti ljósið sem hann eitt sinn dróst að
Random Lyrics
- god complex (vcb) - again lyrics
- muhamedd - محمدد - faker esmek - فاكر أسمك lyrics
- 3grave - dead silence lyrics
- scheana marie - sweet & sour lyrics
- nate sib - famous lyrics
- kill ebola - are you still watching lyrics
- last exit - trip report lyrics
- casperrr - you need some time to rest lyrics
- ernie haase & signature sound - swing low, sweet chariot lyrics
- hohyun - (the noise) lyrics