
flýt þér drekk út - bubbi morthens كلمات أغنية
flýt þér drekk út, sjá dauðinn búinn bíður
brandinn sinn hvessir, dokar þröskuld við
hræðstu samt ei. hann aftur burtu líður
ef til vill gefur nokkur stundargrið
tæringin fer loks með fjörið þitt veika
flýt þér að leika!
still þína strengi, kveð um vorsins klið
yfirbragð gult, með eldblæ magrar kinnar
innfallið brjóstið, sigin herðablöð
rauðbláar allar æðar handar þinnar
útþrútnar, rakar svo sem heit við böð
lófinn er sveittur og sinarnar bila
syng nú og spila
flöskuna dæmdu, ljóðin glymji glöð
móvitz, þú deyr, ég hóstann í þér hræðist
hljóðin eru tóm, það sogar niðri’ í þér
tungan er hvít og máttlaust hjartað mæðist
mjúk eins og dúnn hver taug og hörnud er
andaðu. nei, nei, hve fúlt þefjar frá þér
flöskuna ljá mér
skál, því vínsins drottin dýrka ber
með söng og leik í dropum hefur dropið
dauði þinn leynt og seint hans kaleik sopið
eitraða snáka, hvernig líst þér á?
allt er nú tært og úr augum þínum rennur
innvolsið brennur
hefurðu krafta að kalla skál? ójá
jæja, þá, skál. þér bakkus kveðju biður
bendingu hinsta sendir freyja þér
henni til dýrðar dreyraögnin sýður
drjúgum sem burt úr æðum þínum fer
syng, hugsa gleym þú og hlæ þú og ljóða
heyrðu má bjóða
hestaskál frændi? ferðu? nei, drekk með mér
كلمات أغنية عشوائية
- quasi - tomorrow you'll hide كلمات أغنية
- john lydon - cruel كلمات أغنية
- bj the chicago kid - somebody i used to know كلمات أغنية
- kevin kartier - on my كلمات أغنية
- agarrate catalina - la comunidad كلمات أغنية
- ra ra riot - foolish كلمات أغنية
- quill - giver كلمات أغنية
- kito - sweet talk كلمات أغنية
- quakes - killing moon كلمات أغنية
- rabble - mind ghetto كلمات أغنية