einar teitur - trylltan dans كلمات أغنية
gínurnar stíga trylltan dans þarna uppi á háaloftinu
svo rykið þyrlast upp og skyggir á útsýnið
þær gleyma sér í myrkrinu og þungum drumbuslættinum
og njóta þess að vera lifandi í augnablikinu
mundu kæri vinur minn að vökva litla garðinn þinn
og ekki gleyma að flokka tillfinningar og hugsanir
♠️
því að lok_m tekur feigðin okkur skyrpir okkur öllum út
hún tæmir okkur að innan og fleygir í úlfana
svo sker hún okkur upp og hengir á krókana
vindur okkur eins og tuskur, setur á hlóðirnar
hvað mun koma út úr þér er hún gægist inn?
ertu röndóttur að innan, tígullaga eða hjartahrein?
♠️
uppi í rjáfri situr vængjuð vera, ýfir stélið, fylgist með
ekki horfa í augu hennar eða á þanda vængina
því við eigum okkur öllsömul ýmiskonar leyndarmál
þá er betra að vera búin að reyna að bæta fyrir skissurnar
þegar andardráttur verður að lofti, komið er á endastöð
þá vissara er að vera reiðubúin undir lokaför
♠️
كلمات أغنية عشوائية
- edobass - 1000 versioni di me كلمات أغنية
 - meredith andrews - trusted كلمات أغنية
 - francesco guccini - luci a s.siro كلمات أغنية
 - the super soakers - weekend rockstars كلمات أغنية
 - creeper - valentine كلمات أغنية
 - meredith andrews - spirit of the living god كلمات أغنية
 - rogers park - kingdom kid كلمات أغنية
 - arcángel & dy - pakas de 100 كلمات أغنية
 - trio parada dura - som de cristal كلمات أغنية
 - nelly - the fix كلمات أغنية