
bubbi morthens - talað við gluggann كلمات أغنية
talað við gluggann lyrics
[verse 1]
ég hef staðið við gluggann
heyrt hann tala um komandi harðæri, nístandi él
aldrei fyrr séð hann svo hryggan stara
þegar þú kvaddir hvað ég skildi hann vel
sumarið er farið, það fraus í hylnum
eins og hvítt lím kom fyrsti snjórinn í nótt
þrestirnir dansa á ísuðum línum
en hér inni er allt stillt og rótt
[chorus]
eldurinn í arninum með seiðandi skugga spyr mig:
“hvar er hún í nótt?
sem var vön að halda um höfuð þitt og rugga
þér blítt þar til allt var hljótt?”
og ég get ekki, og ég get ekki
og ég get ekki, og ég get ekki
svarað því
[verse 2]
ég hef staðið við gluggann
heyrt hann tala, spurt hef ég hann:
sér hann þig þar sem þú ferð?
þakinn rósum, kaldur _ vill ekki svara
hvort ást til mín í hjartanu þú berð
ég hef staðið við gluggann
séð hann stara á norðanvindinn
út í fjúkinu leika sér
stundum heyri ég hlátur, í gólffjölum marra
hjartað tekur kipp en það er ekkert hér
[chorus]
eldurinn í arninum með seiðandi skugga spyr mig:
“hvar er hún í nótt?
sem var vön að halda um höfuð þitt og rugga
þér blítt þar til allt var hljótt?”
og ég get ekki, og ég get ekki
og ég get ekki, og ég get ekki
svarað því
كلمات أغنية عشوائية
- honey gentry - lick the stars كلمات أغنية
- gone like summer & orchid mantis - not on your own كلمات أغنية
- tamp10 - tanılama كلمات أغنية
- luisa corna - il giorno giusto كلمات أغنية
- chris janson - this flag كلمات أغنية
- 1of1 & lilac (kor) - one day (dia ver.) كلمات أغنية
- kings & pills - out of time كلمات أغنية
- sacha - woman in the mirror كلمات أغنية
- ая (aya) (bgr) - две очи (dve ochi) كلمات أغنية
- mdcrity - cobra\venom كلمات أغنية