
bubbi morthens - jarðarför bjössa كلمات أغنية
sjáðu nú bjössi, hann brosir við þér
og býður þér hrímgráan reykinn
meðan þú dvaldir með oss hinum hér
og hugrakkur gekkst í leikinn
línur á speglum þig kölluðu á
kókið svo hreint var erfitt að fá
og nú fer
og nú fer kistan þín niður
þitt fríða andlit með æskunnar þrótt
bar engin þess merki í fyrstu
þó víman hjá þér dveldi nótt eftir nótt
og nautnirnar sál þína gistu
allar þær konur sem bældu þín beð
grátandi standa og fylgjast með
þegar kistan
þegar kistan þín fer niður
andlit þitt breyttist og brosið varð stirt
og blóð þitt rann hægar en áður
aftan í þitt líf lyginni var spyrt
lúinn þú varst og þjáður
spilin sem þú hafðir duga ekki hér
þó drógum við ásinn til að fylgja þér
og kistunni
og kistunni þinni niður
nú stirður og kaldur í kistunni ert
karlinn, þar færðu friðinn
farinn ertu, en enginn veit hvert
eflaust sú ferð verður liðin
þegar presturinn mælir: drottinn minn
og moldin fellur á kassann þinn
og kistuna
og kistuna þína hylur
dauðans klukkur kveða sinn dóm
krossi þínum yfir þær hringja
en ef heyrir þú bjössi bjöllunnar róm
og bræður þína reyna að syngja
þá trúlega vеistu við troðum í eina
og tyllum okkur brosandi á letraða steina
og blásum
og blásum á еftir þér niður
كلمات أغنية عشوائية
- bob dylan - red river shore (unreleased version #2) كلمات أغنية
- aeden alvarez - i know it when i feel it كلمات أغنية
- edson e hudson - prazer por prazer كلمات أغنية
- tonha - mode avion كلمات أغنية
- rg tha renegade - creepin (feat. lil queseyot, joey3 & fucktwelve) كلمات أغنية
- sansar salvo - iyi bok yedin كلمات أغنية
- algiva - somos humanos كلمات أغنية
- plunderers - christo كلمات أغنية
- caixa cartão collective - ligação كلمات أغنية
- bob dylan & the band - four strong winds كلمات أغنية