
bubbi morthens - jakob timmerman - argentína كلمات أغنية
ég man daginn sem þeir komu
voru akandi á svörtum bíl
í síðum leðurfrökk_m voru
ég man frakkarnir voru í stíl
það var bundið fyrir augun
mér var hrint niður stigann
úti var hiti og sól
enginn þorði að spyrja hvert farið væri með hann
það þekktu allir terrorinn, þess konar tól
þú ert ákærður fyrir brot á lögum landsins
við jörðum þig í gaddavír
þú ert ákærður fyrir brot á lögum fólksins
við skírum þig í gaddavír
á nóttinni heyri ég hrópin í hinum
það eru mörg afbrigði af sársauka til
ég fann lykt af blóði í voninni
þeir fengu mig til að játa _ hér um bil
oft hugsa ég um ykkur hin fyrir utan
oftast hugsa ég hvenær koma þeir næst
þegar þeir koma bið ég bæn til herrans
hún kemst ekki út því öll hlið eru læst
þú ert ákærður fyrir brot á lögum landsins
við skírum þig í gaddavír
þú ert ákærður fyrir brot á lögum fólksins
við jörðum þig í gaddavír
á nóttinni smala þeir fólkinu saman
suma sjáum við aldrei meir
fyrir utan borgina leggja þá föla á magann
hnakkaskot grár sandurinn verður að rauðum leir
þú ert ákærður fyrir brot á lögum landsins
við jörðum þig í gaddavír
þú ert ákærður fyrir brot á lögum fólksins
við skírum þig í gaddavír
كلمات أغنية عشوائية
- incwell - california soul كلمات أغنية
- consciência humana - dia de revolução كلمات أغنية
- kenyon - soul révolte كلمات أغنية
- fresh l. - fresh life كلمات أغنية
- gianfranco manfredi - e giuseppe leggeva lenin كلمات أغنية
- dominique a - ouest ternes كلمات أغنية
- skarra myakayaka - xogz كلمات أغنية
- skepta - castles كلمات أغنية
- suzi quatro - love isn't fair كلمات أغنية
- vin7 - dents tranchantes كلمات أغنية