
bubbi morthens - bústaðir كلمات أغنية
þegar ýlfrandi, ærandi, skerandi þögnin
rétt fyrir þrumunnar gný
kippast við biskup og borgarastéttin
boðar til fundar á ný
þá ryðjast rottur í holurnar sínar
við reykjanes blómstrar geislavirkt ský
biskupinn blessar þá landið í tíma
kveðjan af himnum er björt og hlý
undir bústaðakirkju, bakvið járnbentan stein
felur sig biskup og ríkisstjórnin
þau horfa á forsetann, heyra ekki veinin
en hengja um háls sér dósahnífinn
loftræstikerfið ber nálykt að utan
ilmsölt í nefið í byrginu finnast
með titrandi höndum þau þurrka af sér svitann
er loftið ekki sífellt að þynnast?
þau halda sig hólpin langt frá stöðum
sem helsprengjan er að tortíma
með dollum og dósum sem bíða í röðum
vitna um dýrðlega tíma
hópurinn sest í kringum hátíðarborð
h_llir úr dósum á diska
ef kalla á matareitrun morð
mun kaupfélagsstjórinn fá hiksta
þótt kjarnorkubyrgið í bústöðum
bjargaði þeim frá sprengjum
gat enginn maður vitað um
íslenskra hagsýni í dósum
كلمات أغنية عشوائية
- hushpuppies - single كلمات أغنية
- hurricane smith - my mother was her name كلمات أغنية
- hymen holocaust - german goo girls كلمات أغنية
- hypnosia - perpetual dormancy كلمات أغنية
- hello madness - once again كلمات أغنية
- hurrah - this boy كلمات أغنية
- i am terrified - to the service كلمات أغنية
- husky rescue - city lights كلمات أغنية
- hushpuppies - love bandit كلمات أغنية
- hush - sometimes كلمات أغنية