
baggalútur - það koma vonandi jól كلمات أغنية
allflestar útgöngu spár
eru á eina lund
þetta var skelfilegt ár
hér út við heimskautsins baug
hnípin þjóð, þráðbeint á höfuðið flaug
allt þetta útrásar pakk
át á sig gat
svo loftbólan sprakk
nú eru lífskjörin skert
mannorðið svert
hvað hafið þið gert?
það koma vonandi jól
með hækkandi sól
við skellum könnu upp á stól
og sollu í kjól
þrátt fyrir allt
þrátt fyrir verðbólguskot
þjóðargjaldþrot
við áttum íbúð og bens
og orlofs hús
allt meikaði sens
góðgerðir gáfum og blóð
greiddum í
dulítinn séreignasjóð
en nú er allt þetta breytt
og eftir er
nákvæmlega ekki neitt
já nú er útlitið dökkt
ljósið er slökkt
og við erum f_cked
það koma vonandi jól
með hækkandi sól
þó vanti möndlu í graut
og amerískt skraut
þrátt fyrir allt
þrátt fyrir háðung og smán
myntkörfulán
það koma vonandi jól
með hækkandi sól
við étum á okkur gat
af innlendum mat
og þrátt fyrir allt
misnotum sykur og salt
það koma vonandi jól
með hækkandi sól
við krössum afmælið hans
heimslausnarans
því að þrátt fyrir allt
drekk_m við mysu í malt
كلمات أغنية عشوائية
- russell hill - texas rain كلمات أغنية
- bêo antarez - ep 01 - oreille nue كلمات أغنية
- michael chapman - a spanish incident (ramón and durango) كلمات أغنية
- drixx madison - go in كلمات أغنية
- bit$u - le vide et le bord كلمات أغنية
- a-d the kid - no smoke :) كلمات أغنية
- take a mic - confiance كلمات أغنية
- shanti gok - shannnttii كلمات أغنية
- prana - nada en el mundo كلمات أغنية
- the jibster - world is forgotten كلمات أغنية